Kristín Eiríksdóttir fæddist árið 1981 í Reykjavík. Hún lauk B.A. prófi frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2005.
Fyrsta ljóðabók Kristínar, Kjötbærinn, kom út árið 2004. Áður höfðu ljóð hennar birst í tímaritum og dagblöðum. Á eftir fylgdu svo ljóðabækurnar Húðlit Auðnin árið 2006 og Annarskonar sæla árið 2008. Árið 2010 kom út smásagnasafnið Doris deyr og haustið 2012 sendi hún frá sér sína fyrstu skáldsögu, Hvítfeld – fjölskyldusaga. Hún hefur einnig skrifað tvö leikrit: Karma fyrir fugla ásamt Kari Ósk Grétudóttur, sem frumsýnt verður í Þjóðleikhúsinu í febrúar 2013 og Skríddu sem sett var upp í Borgarleikhúsinu í apríl 2013.
Kristín hefur lagt stund á þýðingar, en árið 2010 kom út í hennar þýðingu bókin Hundshaus eftir danska rithöfundinn Morten Ramsland.
Auk þess að sinna ritstörfum hefur Kristín tekið þátt í samsýningum og sett upp gjörninga í samstarfi við Ingibjörgu Magnadóttur, bæði hér heima og erlendis. Sögur hennar og ljóð hafa verið þýdd yfir á dönsku, þýsku og ensku.
Kristín býr í Reykjavík.
Hystory
Hystory fjallar um þrjár ungar konur, æskuvinkonur, sem hittast eftir mörg ár hjá einni þeirra. Boðið gengur vel í fyrstu, þær spjalla og skiptast á sögum úr fortíðinni sem virðast ætla að tengja þær sterkum böndum á ný. En skyndilega breytist allt og ógnvænlegur atburður úr fortíðinni kemur upp á yfirborðið. Óumflýjanlegt uppgjör á sér stað.